Nýtt blog thordisb.blogspot.com

Þú verður fluttur aftur :haha:

 

Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Fri, 12 Jan 2007 12:20

Mikið búið að gerast

Síðustu helgi fórum við norður á land að veiða byrjuðum á því að renna á Akureyri og gista þar eina nótt og svo brunað beint í Miðfjörð, rétt hjá Bakkafirði og þar en þar á fjölskyldan hans Jóa hús og hlut í Laxveiðiá en við vorum að veiða þar fös, lau og sunnudag. Það var geðveikt gaman og ég veiddi minn fyrsta lax þarna *lol*

Svo í vikunni þá vildi Jói fá að gefa mér hluta af afmælisgjöfinni minni aðeins fyrr og ég svona var ekki alveg að gleypa það en ok, þannig að hann bað mig um að hitta sig niðri í bæ, svo leiddi hann mig smá spotta og inn í eitthvað hús þar sem við tókum lyftuna upp á 4. hæð. Og þar var dansskóli :D haha Jói ákvað að gefa mér dansnámskeið í samkvæmisdönsum þetta verður massa gaman.

En svo í gær þá gerðist soldið mjög leiðinlegt hann Húgó okkar dó :( við Jói vorum sofandi úti á Ægisíðu þegar mamma hans Jóa hringdi og sagði að Húgó væri eitthvað skrítin, þannig að við hoppuðum út og þegar við komum heim þá var hann dáinn, Þannig að við tókum okkur frí frá vinnu í gær bara að jafna okkur eftir þetta skindilega og mikla áfall. En Húgó greyið var sendur í krufningu og vonandi að það komi eitthvað út úr henni því þetta á ekki að gerast fyrir 10 mánaða heilbrigðan hund *angry* Svo munum við jarða hann á fallegum stað upp í sumó

Vona bara að hann hafi það gott á himnum og að Thea mín hugsi vel um hann...
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Fri, 15 Sep 2006 23:55

Fw: Kakan sem ég bakadi fyrir rock star

Kakan sem ég bakadi fyrir rock star partyid hja freyju og audvitad med hjálp jóa :)
Picture entry sent by Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Wed, 13 Sep 2006 10:10

Helgin

Jæja langt síðan ég bloggaði en svona það helsta sem hefur gerst er að ég er byrjuð að læra á mótorhjól, sem er vægast sagt leiðinlegt til að byrja með *angry* en ég vona að það fari að vera betra þegar maður er búin með þetta keilu sikk sakk..

En Jói Elskaði þetta og fannst það æði enda er hann aðeins meiri dellukall en ég..

Svo er það sem er helst á dagskrá um helgina er að fara norður að veiða með fjölskyldunni hans Jóa, en þau eiga einhverja lax veiði á einhversstaðar guð veit hvar, það eina sem ég veit að við Jói leggjum af stað í kvöld til Akureyrar í kvöld og munum við gista á Lónsá þeim ágæta stað í nótt og leggja svo af stað snemma næsta morgun..

Planið er að taka fyrsta laxinn þarna ég sendi auðvitað mynd um leið og það gerist ef það gerist þar að segja *rolleyes*

anyway ble á meðan

Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Thu, 7 Sep 2006 17:28

Veikindi smeikindi

Í gær var offical veikindadagur hjá litlu fjölskyldunni semsagt mér, Jóa og Húgó.

Við Jói þurftum að fara til læknis og svo seinna um daginn vildi Húgó ekki vera útundan þannig að hann fór líka til dýra og er mjög líklega með fæðuofnæmi og flogveiki :o en við ætlum að skipta um mat hjá honum og sjá svo til hvort að hann fái fleiri köst *confused*

Í dag er rosa ástand í ármúla versluninni en við erum bara 3 að vinna, sem er frekar slæmt þar sem kringlan og smárinn meika það varla 3 hvað þá við :(

En annars svo ég komi með góðar fréttir þá komst magni áfram í gær eins og allir vita, og Freyja kíkti í heimsókn í gær með tonn af súkkulaði til að láta sjúklingnum líða betur :D Takk fyrir það Freyja.

Svo er bara að bíða eftir helginni veiði og svona

Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Thu, 31 Aug 2006 10:37

Helgin

Jæja þá er fyrsta vikan í Ármúlanum liðin og gékk líka bara svona helvíti vel, mötuneytið æði og allt gott bara.

Á laugardaginn var skellt sér í rafting með vinnunni í Hvítá, sem var geðveikt gaman ég stökk meira að segja fram af 4 m háum kletti út í jökulsána   samt bara einu sinni, sumir töpuðu sér aðeins í gleðinni og stukku of oft, ef það er hægt..

Eftir allan róðurinn þá þurftum við að labba smá spotta til baka en það kom ekki að sök, svo skellti maður sér bara í pottinn og sat þar þangað til að maður var komin með smá hlýju í kroppinn  

Eftir það fékk maður líka þennan fína grill mat, svo var brunað á Eyrina í smá afmælis teiti, en þar sem við Jói vorum bæði hálf uppgefin eftir mikinn róður þá fórum við fljótlega í bæin.

Gærdeginum var síðan eitt í að mála fataskápinn sem ég vill hafa hvítan en var viðalitaður fyrir.

Svo er komið að því að ég og aðrir eldriborgarar fari að skipuleggja næsta sumar, og eins og vanalega er stefnan sett á danmörku  ég elska þetta land jafn mikið og ég hata tungumálið þeirra. Ég ætla að dverljast þarna í 3 vikur með M og P, Stebbu, Jóa, Gunnu, Smára, Berthu og Evu. Í tvær vikur verðum við á Jótlandi og 1 viku á Sjálandi. Þetta verður geggjað og ég ætla að sýna Jóa allt sem DK hefur upp á að bjóða, en við ætlum að leigja okkar eigin bíl og skottast um landið, og kíkja kannski yfir til Þjóðverjana.

Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Tue, 29 Aug 2006 09:38

Miðvika

Jæja þá eru tveir dagar búnir í Ármúlanum og ég verð að segja að þetta er helvíti fínt bara gott að komast í mötuneyti og það er líka alltaf svo mikið að gera að tíminn flýgur áfram.

Í gær fór ég á maraþon bílasölurúnt þar sem ég náði að skoða næstum allar bílasölur á höfuðborgarsvæðinu líka þessar sem ég vissi ekki af *rolleyes* Mæli með bílasölunni hjá kjötsmiðjunni, sætir bílar og yndisleg lykt :p

Svo var bara farið að sofa kl 10 þvílíkt nice að vakna án þess að vera þreyttur. Maður þarf að koma sér í þessa rútínu, sofa kl 10 vakna kl 7 eða 6.
- Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Wed, 23 Aug 2006 08:18

Menningar nótt

Í gær ákvað ég að nota helgarfríið mitt vel og sofa  út, sem var bara nokkuð gott enda langt síðan ég var í fríi síðast.
Við Jói ákváðum samt að nýta daginn í eitthvað annað en tölvuleiki og svefn þannig að við fórum á bílasölur að leita að bíl handa pabba en komumst bara yfir tvær sölur en á fyrstu sölunni sáum við nokkra mjög góða bíla en það var lokað *crazy*
Þannig að það þíddi ekki að pæla meira í því þá fórum við í IH og komumst ekki lengra fórum ekki í notaða bíla heldur nýja að skoða bílinn sem Jói er svo skotinn í Opel östru OPC sem er tveggja lítra turbo og 240 hö. Sölumaðurinn var svo elskulegur að bjóða okkur að taka rúnt án þess að við þyrftum að biðja um það :D
Skemmtilegur rúntur og það lítur út fyrir það að bíllinn hafi bara tvo hraða annað hvort 0 eða 120 sem er ekki sniðugt fyrir manneskju eins og mig, löggan myndi samt græða vel.
Þetta var samt skemmtilegt tæki það var alveg sama hvaða gír maður var í 3,4,5, eða 6 hann rauk alltaf af stað.

Svo var það matur í mosó sem var mjög góður og svo brunað í bæinn á flugeldasýninguna. Við lögðum í borgartúninu og eftir magnaða flugeldasýningu þá fórum við aftur í bílinn og þvílík umferð en með herkænsku og nokkrum umferðalaga brotum þá tókst þetta allt fórum nokkru sinnum á móti einstefnu og svona sem var frekar fyndið en það reddaðist allt og það tók okkur aðeins 40 mín að  komast í vesturbæinn :o



Ég tók þessa mynd í gær af flugeldunum, með flottari sýningum held ég bara..

Email blog sent by Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Sun, 20 Aug 2006 16:20

Maginn minn...

..er svo sléttur að ég nota gluggasköfu til að þurka hann *cool*
- Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Sat, 19 Aug 2006 17:39

ÉG FÉLL ...

.. Og ég get sagt ykkur það að ég er ekki ánægð með þessa frammistöðu mína en fall er fararheill *embarrased* 

Ég klúðraði þessu á alveg ótrúlega gegnsæum spurningum, en það er ekki eins og mér liggi eitthvað á ég á ekki einu sinni hjól og það er að koma vetur. En ég skráði mig samt í endurtektar próf 29. ágúst vona bara að það fari betur *rolleyes*

Annars fórum við Jói að labba í fjörunni úti á nesi í gær þar sem Húgó skemmti sér við að synda og þá náði ég þessari mynd af honum hérna fyrir neðan *lol*

Já og þessi síðasti dagur minn hérna í Smáranum er ekki að byrja vel, fall á prófi og að það er ekki fundur í dag eins og alla föstudaga heldur er hann á mánudaginn, þannig að ég er mætt 1 klst of snemma í vinnuna *crazy*

- Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Fri, 18 Aug 2006 10:19

DSC01588

Picture entry sent by Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Thu, 17 Aug 2006 21:24

Fimmtudagur

Bara búið að vera rólegt undanfarið er bara að bíða eftir að þessi vika klárist og að ég geti flutt mig yfir í Ármúlan..

Voðalega lítið plan í gangi þessa dagana nema á morgun þá er ég að fara að taka bóklega mótorhjólaprófið eins gott að ég standi mig betur en Jói, ég er allavega hærri en hann á bílprófinu á sjova.is :D

Annars bara voða lítið í gangi....

- Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Thu, 17 Aug 2006 12:45

Sunnudagur

Eftir öflugt símadjamm á föstudagskvöldið ákváðum við Jói að vera bara heima og horfa á Date Movie með fjölskyldunni, myndinn var alveg ágæt en ekkert betri en aðrar svona myndir..

Jói fann líka upp góða leið til að hreifa hundinn sinn, taka tennis bolta og spaða með út að labba og dúndra boltanum svo eins langt og þú getur  :D

Svo er verið að plana utanlandsferð meiri upplýsingar um það síðar :)

Einnig er það mér mikil ánægja að tilkynna að þetta er síðasta helgin sem ég verð að vinna, vonandi í mjög langan tíma. Ég er búin að fá vinnu í versluninni í Ármúlanum og þar er lokað um helgar :p Það verður stuð....

Allir að kvitta... ASAP

- Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Sun, 13 Aug 2006 15:58

Veiðin í gær

Jæja hérna er helmingurinn af bleikjunum sem við veiddum :D
Picture entry sent by Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Fri, 11 Aug 2006 12:24

Versló

Versló helgin var geðveik, ég fór á Unglingalandsmótið á Laugum að gefa dót frá Símanum og með í för voru Freyja, Gutti, Jói og nokkrar símastelpur og auðvitað Húgó litla kríli..

Ég fór norður með Gutta á nördabílnum og Freyja og Jói komu svo seinna um kvöldið með camperinn, um leið og þau komu brunuðum við beint á Sigur Rós í Ásbyrgi sem var alveg magnað ef við hefðum ekki þurft að ganga í svona 40 mín áður en við komust að tónleikunum því eins og vanalega er Freyja frekar illa búin um lappirnar gullna reglan hennar er: það er ekki þægindinn sem skipta máli heldur lúkkið..

Á laugardaginn eyddum við öllum deginum í að gefa brjáluðum börnum og foreldrum þeirra eitthvað skemmtilegt símadót, eftir vinnu fórum við svo í sund og svo upp í camper að grilla, á sunnudeginum gerðum við það nákvæmlega sama nema að ég plataði Jóa í að koma með mér að gefa ís við fórum út um allt svæðið og gáfum yfir 1000 frostpinna í grenjandi rigningu *lol*

Eftir vinnu kíktum við svo á Mývatn þar sem Gutti og Jói skriðu ofan í einhverja gjótu og fóru þar í heitan pott en við Freyja vorum ekki alveg game í það.. Seinna um kvöldið var svo brunað upp í bústað til Freyju þar sem við héldum magnað camper partý en vorum reyndar beðinn um að færa okkur vegna hávaða það er kosturinn við camper partý ef maður er með læti þá keyrir maður bara lengar í burtu.. Þá fór ég einnig og færði Nörda bílinn með og Jói kom með mér hann í frekar annalegu ástandi sagði við mig að keyra á camperinn það væri bara grín  *crazy* Aldrei að láta Jóa koma nálægt ökutækjum þegar hann er fullur..

Svo á mánudaginn þá var það bara sund á ak og bautinn og svo brunað heim ....

- Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Fri, 11 Aug 2006 11:52

Jæja tetta er búin ad vera mögnud helgi

Jæja tetta er búin ad vera mögnud helgi og hún er ekki búin enntá núna erum vid ad fara ad leggja af stad til ak og gistum tar í nótt. Tessi mynd er tekin i Dymmuborgum tar sem vid vorum í dag.
Picture entry sent by Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Sun, 6 Aug 2006 22:58

Tessi gaf mér EKKi sekt :p

Tessi gaf mér EKKi sekt :p
Picture entry sent by Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Fri, 4 Aug 2006 19:28

Norðurland here i come!!!!!

Jæja þá er helgin alveg að skella á og leiðin liggur norður á land Laugar nánar tiltekið og nei þá er ég ekki að tala um Laugar á Bíldudal þó svo að það væri eflaust skemmtilegt líka...

Í morgun fórum  við Gutti til Þorlákshafnar að gefa tjöld, ís, stóla og regnslár :D Djöfull var það gaman og allir elskuðu okkur út af lífinu margir vildu fá mynd af símastelpunni þannig að þetta var svona smá módel gigg í leiðinni :p

Á morgun er það svo bara að leggja af stað kl 7 og drífa sig norður að gefa dót, svo kemur Jói minn seinna um daginn á campernum þannig að við förum í smá útilegu og Húgó fær að koma með :) 

Svo er það bara Sigurrós í Ásbyrgi á morgun ...

Góða skemmtun um helgina og allir að keyra rólega  *lol*

- Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Thu, 3 Aug 2006 23:26

Mið

Jæja það helsta sem maður er búin að vera bralla undanfarið er að vinna..

Ég fór á Sigurrósar tónleikana á miklatúni(klambratúni) um daginn magnað gaman, og við ætlum að fara aftur á föstudaginn þegar þeir spila í Ásbyrgi, en ég er að fara norður með símanum á föstudaginn til að vinna á unglingalandsmótinu og Jói kemur með mér, svo á sunnudaginn þá ætlum við að taka smá rúnt og renna svo í bæin á sunnudag.

Ég er byrjuð að læra á mótorhjól er að klára bóklegutímana í dag, jey enda ekkert leiðinlegra en bóklegt ökunám, ég held að það skipti engu máli á hvaða ökutæki maður er að læra *crazy* Svo er bara að drífa sig í verklegu tímana svo að þetta fari að verða gaman, og fara svo að þeysast um göturborgarinnar.

Í gær hitti ég svo Freyju eftir 3 mánaða aðskilnað *lol* og fórum við saman á Pirates of the Caribbean, jumm jumm Orlando og Johnny eru æði, þetta  var ógeðslega skemmtileg mynd. Ég grét meira að segja úr hlátri, og Freyja fór að gráta líka bara afþví að horfa á mig hlæja :p

Marco kom í heimsókn í vinnuna til mín áðan og gaf mér puma skó, sem hann hafði keypt fyrir mig í kína, geðveikt sætir.. 

Núna er svo bara langt frí framundan er í fríi fim,fös,lau,sun og mán og svo mið og fim :D

Og Allir að commenta...

- Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Wed, 2 Aug 2006 13:50

ANDVAKA!!

get ekki sofnad :(
- Dísa
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Said Þórdís Björg Björgvinsdóttir
Wed, 2 Aug 2006 02:29

first << prev | Pages : 1 2 3 | next >> last